Um okkur

Ég heiti Harpa Guðlaugsdóttir og er löggiltur endurskoðandi.

Ég hef víðtæka reynsla af bókhaldi, uppgjörum, skattamálum og fjármálum fyrirtækja. Síðastliðin tæp 20 ár hef ég unnið með fjölbreyttum rekstri, allt frá litlum, einföldum félögum upp í stærri félög með flóknari ferla og kröfur.

Ég þekki því vel þær áskoranir sem fylgja rekstri fyrirtækja og hversu mikilvægt er að hafa bókhaldið og fjármálin í lagi. Gott bókhald snýst ekki bara um að uppfylla lög og skila ársreikningum á réttum tíma. Það snýst um að hafa yfirsýn, geta tekið upplýstar ákvarðanir og byggt upp heilbrigðan rekstur til framtíðar. Bókhald sem er í lagi er stjórntæki. Þegar tölurnar eru rétt uppfærðar getur þú tekið betri ákvarðanir, brugðist hraðar við og nýtt tækifæri sem annars færu fram hjá þér.

Ég legg mikla áherslu á:

  • nákvæm og fagleg vinnubrögð
  • góð samskipti og aðgengi
  • skilvirkt, stafrænt bókhaldsferli
  • að finna lausnir sem henta hverju fyrirtæki

Ég vinn með öll helstu bókhaldskerfi og legg áherslu á skilvirkni og stafrænar lausnir sem spara tíma og minnka handavinnu. Þannig get ég veitt betri þjónustu og þú færð meiri yfirsýn.

Ef þú vilt bókara sem fylgir hlutunum á eftir og hefur raunverulegan áhuga á að reksturinn þinn gangi vel, þá ertu að réttum stað.

Hafðu samband og við skoðum saman hvað hentar þínum rekstri.